blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

12.10.2004

Svona fór það..

Ég held að þessi ofvirkni brandarar hjá mér séu hættir að vera fyndnir. Alltaf fundist það frekar sniðugt hvað maður er virkur.. og stundum of-virkur en hef ekki tekið þessu svona persónulega fyrr en nú! Var búin að ræða þennan vítamín og prótein-kikk-lýða betur-allt-gott-kúr sem ég ákvað að fara á! Núna 9 dögum seinna er eiginlega hægt að segja að ég hafi sofið í 9 daga. Sem sagt svona orku-búst virkar öfugt á mig! Hvað segir það manni? Hvað fá ofvirku börnin við sínu? ..... sem sagt ekkert voðalega fyndið lengur!!!! eða jú :-)
Ég varð sem sagt að hætta á þessu öllu saman. Hætti í gær og er svona hægt og þétt að skríða saman eftir ósköpin! Mikið rosalega er ég búin að vera þreytt og ég hef sofið endalaust! Við erum alveg að tala um 12 tíma á sólarhring! jahá svona fór þessi ná-í-meiri-orku-kúr!!! Ekki nóg með að ég hafi verið þreytt heldur hef ég greinilega eitthvað ónæmi fyrir einhverju af þessu þvi ég varð bara ljótari með hverjum deginum! Sem er ekkert sérstaklega gott né uppörfandi þar sem tilgangurinn var akkurat annar...frískleiki og orka!!! Merkilegur andskoti! en þetta er samt fyndið ! ........þá er bara að finna sér eitthvað annað að gera..... hhmm hugs hugs.......

0 Comments:

Post a Comment

<< Home